Matreiðslumeistarinn Hákon Már Örvarsson verður aftur með „pop-up“ matseðil á Hotel Holti í aðdraganda komandi jóla.
Í fyrra komu yfir 700 manns í „pop-up“ veislumáltíð á Holtið í matseðilinn hjá Hákoni.
Núna í ár verða 9 kvöld í boði og hefst veislan 30 nóvember. Eftirfarandi dagsetningar verða í
boði.
3 nóv, 1 des, 2 des. /// 7 des, 8 des, 9 des /// 14 des, 15 des, 16 des
Matseðillinn er 6 rétta og er hægt að njóta með vínpörun eða óáfengri drykkjarpörun.
„Mig langar að bjóða uppá fjölrétta hátíðarmatseðil með réttum sem ég hef búið til fyrir gesti
að njóta í aðraganda jóla. Ég hef valið úrvalsgott hráefni. Svo er matreiðslan, brögðin og
framsetningin trú mér og í mínum anda á þessum árstíma. Auk þess, þá er þetta hugsað sem
kvöld fyrir matar og vín upplifun.“
Segir Hákon sem hefur í gegnum árin unnið til verðlauna fyrir hæfileika sína í eldhúsinu jafnt
hér heima sem og erlendis. Þá er helst að nefna Bocuse d´Or bronsverðlaun á sínum tíma
m.a.
Líkt og í fyrra verður Þorri Hringsson listmálari innan handar með vali á léttvínum til að para
viðeigandi vín með öllum réttum matseðilsins. Þorri hefur áralangt fjallað um vín og er einn
okkar fremsti vínsérfræðingur. Hann heldur úti vínsíðunni Víngarðurinn á Facebook.
Hótel Holt og Hákon bjóða ykkur aftur hjartanlega velkomin/n í veislumáltíð í glæsilegu
veitingarými á Holtinu í desember.
Allar frekari upplýsingar má nálgast í síma Hótel Holt 5525700
Eða senda tölvupóst til holt@holt.is og hakon.chef@gmail.com